Sérhönnun tekur að sér öll verkefni sem fólki dettur í hug. Við hönnum vöruna með þér, finnum réttan framleiðanda úr neti okkar af yfir hundrað framleiðendum og skilum henni í hendurnar á þér.


Peysur, mottur, lyktarspjöld, jakkar, pílumottur, bolir, töskur. Ef varan er ekki til, þá látum við búa hana til. Þú kemur með hugmyndina, við sjáum um restina.
Þrjú svið, sama fólkið. Oftast blandast þau saman í einu verkefni.
Hettupeysur, bolir, jakkar, húfur, vinnufatnaður. Útsaumur, prent eða sérsaumað frá grunni með þínu sniði.
Allt sem hægt er að merkja, og margt sem enginn hefur merkt áður. Við finnum framleiðanda og fáum sýnishorn áður en pantað er.
Merki, uppsetning fyrir prent og vefsíður. Við teiknum líka gamla PDF-merkið þitt upp í vektor svo það prentist skarpt á hvað sem er.
Alvöru vörur hjá alvöru viðskiptavinum. Ekkert af þessu var til í búð.
















Allir sem eru með hóp, merki og hugmynd. Smelltu á þinn hóp og sjáðu hvað aðrir hafa látið gera.
Útskriftarpeysur, árgangsbolir, dimmisjón, húfur og fánar í útskriftarferðina.
Tónleikar, fótboltamót, árshátíðir, ráðstefnur. Allt sem gestir taka með sér heim.
Nemendafélagspeysur með merki félagsins og nafni á ermi, eins og NFNV.
Starfsmannafatnaður, gólfmottur í anddyrið, gjafir fyrir viðskiptavini.
Æfingafatnaður, stuðningsmannavörur, verðlaunagripir, treflar og fánar.
Starfsmannabolir, pílumottur, drykkjarmottur, matseðlar og skilti.
Bolir fyrir hópinn, glös, servíettur, gestabækur og þakkargjafir.
Ættarmótsbolir með nöfnum allra, fánar, spil og hettupeysur fyrir alla kynslóðina.
Mót, tónleikar, árshátíð, ráðstefna, keppni, afmæli félags. Við höfum gert vörurnar fyrir viðburði og vitum hvað þarf að vera tilbúið hvenær. Segðu okkur dagsetninguna og við vinnum aftur á bak frá henni.








Þið eruð með kosninganefnd, takmarkaðan tíma og hundrað skoðanir. Við höfum gert þetta áður. Sendið okkur skólann, árganginn og hvaða stemning er í gangi, og þið fáið tillögur til baka sem hægt er að kjósa um.
Þú þarft aldrei að tala við framleiðanda, tollinn eða prentsmiðju. Það gerum við.
Þú sendir okkur nokkrar línur, mynd eða servíettuskissu. Það dugar.
Við teiknum vöruna upp og sendum þér tillögu til samþykktar.
Við veljum réttan framleiðanda úr neti okkar eftir efni, magni og tíma.
Þú sérð og snertir vöruna áður en stærri pöntun fer af stað.
Við sjáum um flutning og toll og skilum vörunni til þín.
Allt á þessum lista getum við látið framleiða með þínu merki. Og allt sem vantar á hann líka.
Við trúum því að góðar hugmyndir eigi ekki að sitja á hakanum. Þess vegna segjum við sjaldan nei og oft „hvenær þarftu þetta?“.
Við finnum nýjar og frumlegar leiðir til að koma hugmyndum til skila. Ef varan er ekki til finnum við leið til að láta búa hana til.
Við vinnum aðeins með vandað efni og trausta framleiðendur. Sýnishorn fyrst, stór pöntun svo.
Engin verkefni eru eins. Við hlustum, skiljum og hönnum sérlausnir, og þú talar alltaf við sömu manneskjuna.
Það þarf ekki að vera fullmótað. Nokkrar línur duga, við spyrjum um restina og sendum tilboð.